23 júl Sumarlokun
Skrifstofa Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. verður lokuð í tvær vikur, frá 25. júlí til og með 9. ágúst 2020, vegna sumarleyfa starfsfólks.
Við opnum aftur mánudaginn 10. ágúst, hress og endurnærð.
Við viljum vekja athygli á eftirfarandi:
- Byggingarstjórar sjá nú sjálfir um áfangaúttektir á byggingaframkvæmdum og skil á úttektarskýrslum í gagnasafn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
- Með rafrænum skilríkjum er hægt að sækja um byggingarleyfi í gegnum þjónustugátt byggingarfulltrúa hér á heimasíðu embættisins, www.utu.is
- Hönnuðir geta jafnframt skilað inn í gegnum þjónustugátt byggingarfulltrúa aðaluppdráttum á pdf. formi og skráningartöflum í excel
- Skráningar á byggingarstjórum og iðnmeisturum fara einnig fram með rafrænum skilríkjum í gegnum þjónustugátt byggingarfulltrúa
Næsti fundur skipulagsnefndar verður miðvikudaginn 12. ágúst.
Næsti afgreiðslufundur byggingarfulltrúa verður fimmtudaginn 13. ágúst.
Sumarkveðja, starfsfólk UTU bs.