Athugið að embættið innheimtir afgreiðslugjald sem er óafturkræft, hvort sem umsókn er samþykkt eða henni synjað, enda hafa starfsmenn embættisins lagt í vinnu við að komast að niðurstöðu málsins.
Gjaldskrár vegna skipulags- og byggingarmála:
Til áréttingar:
Gjöld embættisins skv. þessum gjaldskrám bera ekki virðisaukaskatt með tilvísun í 4. tölulið 3. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988 sem segir efnislega að ríki, bæjar- og sveitarfélög eða fyrirtæki og stofnanir á þeirra vegum skuli aðeins innheimta virðisaukaskatt af vörum og skattskyldri þjónustu sem teljast vera í samkeppnisrekstri en ekki að öðru leyti.