27 jan Skipulagsauglýsing sem birtist 26. janúar 2017
Aðalskipulag Hrunamannahrepps 2016-2032. Heildarendurskoðun.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps hefur samþykkt að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Hrunamannahrepps skv. 31. gr. laga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu sbr. 7. gr. laga nr. 105/2006. Nýtt aðalskipulag tekur til tímabilsins 2016-2032 og er endurskoðun á aðalskipulagi fyrir tímabilið 2003-2015.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Hrunamannahrepps Akurgerði 6 á Flúðum, hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Dalbraut 12 á Laugarvatni og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík. Þá eru öll gögn aðalskipulagsins aðgengileg rafrænt á heimasíðu Hrunamannahrepps www.fludir.is og á heimasíðu skipulags- og byggingarfulltrúa www.sbf.is.
Tillagan er í kynningu frá 26. janúar til 10. mars 2017. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til 10. mars 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum til skipulagsfulltrúa á skrifstofu hans að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni eða á netfangið petur@sudurland.is.
Skipulagsuppdráttur – Afréttur
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi
petur@sudurland.is