23 feb Skipulagsauglýsing sem birtist 23. febrúar 2022
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Grímsnes- og Grafningshreppur
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi aðalskipulagsáætlunar:
- Aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 – 1506033
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að nýju aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Innan aðalskipulags er lögð fram stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu á skipulagstímanum. Við gildistöku nýs aðalskipulags mun gildandi aðalskipulag ásamt síðari breytingum falla úr gildi. Með nýrri aðalskipulagsáætlun er lögð fram skipulagsgreinargerð, sveitarfélagsuppdráttur, uppdráttur sem tekur til afréttar ásamt þéttbýlisuppdráttum sem taka til þéttbýlisins að Borg og Sólheima. Að auki er lögð fram forsendu og umhverfisskýrsla, flokkun á landbúnaðarlandi, skilgreining landbúnaðarsvæða L1-L3 auk uppdrátta sen taka til verndarsvæða, vega í náttúru Íslands, vistgerða og minja samkvæmt aðalskráningu fornminja.
Gögn á pfd:
Flokkun landbúnaðarlands, L1, L2, L3
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:
- Kerhraun svæði A, B og C; Frístundabyggð; Endurskoðað deiliskipulag – 2201063
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 2. febrúar 2022 að auglýsa deiliskipulagstillögu sem tekur til frístundasvæðis að Kerhrauni, svæði A, B og C. Tillagan er sett fram sem nýtt deiliskipulag og tekur til allra þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á upprunalegu deiliskipulagi svæðisins. Við gildistöku deiliskipulags falla úr gildi öll ákvæði eldra deiliskipulags. Tilgangur skipulagsgerðarinnar er að uppfæra eldra skipulag í samræmi við núgildandi lög og skilgreina helstu bygginga- og framkvæmdaskilmála innan svæðisins með skýrum hætti.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni http://www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélagsins: https://www.gogg.is/
Mál innan auglýsingar eru auglýst frá 23. febrúar 2022 til og með 7. apríl 2022.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið vigfus@utu.is
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU