19 jan SKIPULAGSAUGLÝSING sem birtist 19. janúar 2023
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Flóahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga auk tillögu nýrra deiliskipulagsáætlunar.
- Skálmholt; Huldu- og Maríuhólar; Íbúðabyggð; Deiliskipulag – 2211052
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. janúar 2023 að kynna tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til íbúðarbyggðar í landi Skálmholts. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 43 nýjum íbúðarhúsalóðum að stærðinni 8.751 fm til 16.428 fm. Auk þess eru á svæðinu fjórar 15.000 fm frístundalóðir sem breytast í íbúðarlóðir. Heildarfjöldi íbúðalóða á svæðinu verður því 47. Á þeim er heimilt að byggja íbúðarhús og útihús, geymslu/bílageymslu. Nýtingarhlutfall lóða má vera allt að 0,05.
Deiliskipulag – með greinargerð
- Úthlíð L167514; VÞ15 Breyttar heimildir; Aðalskipulagsbreyting – 2209074
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 19. desember 2022 að kynna tillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 innan jarðarinnar Úthlíð. Breytingin snýr að því að hluta verslunar- og þjónustusvæðisins verður breytt í afþreyingar- og ferðamannasvæði þar sem heimild verður fyrir hjólhýsasvæði og tjaldsvæði. Þá verður afmörkun verslunar- og þjónustusvæðisins breytt og byggingarheimildir uppfærðar. Í Úthlíð er mikil frístundabyggð og einnig ýmis konar þjónustustarfsemi tengd henni. Markmiðið með breytingunni er að efla starfsemi og þjónustu í Úthlíð.
- Hnaus; Hnaus 2; Breytt landnotkun (F16 og F16D); Aðalskipulagsbreyting – 2207019
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. janúar 2023 að kynna tillögu aðalskipulagsbreytinga sem tekur til Hnaus og Hnaus 2. Breytingin tekur til frístundasvæðanna F16 og F16D sem skilgreind verða sem landbúnaðarland, ásamt hluta skógræktar- og landgræðslusvæðis, SL6. Um er að ræða svæði sem tilheyra lóðunum Hnaus L166347, Hnaus lóð L178934, Hnaus lóð L17893, Hnaus land 1 L213872 og Mosató 4 L230715.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Klif L167134; Skilgreining landsvæðis; Aðalskipulagsbreyting – 2201035
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 19. desember 2022 að auglýsa tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til jarðarinnar Klif í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að hluti skilgreinds frístundasvæðis er breytt í landbúnaðarsvæði.
- Bæjarás veiðihús L233313; Laxárdalur við Stóru-Laxá (svæði AF2); Aðalskipulagsbreyting – 2206010
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til Bæjaráss veiðihúss í landi Laxárdals. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felur í sér breytingu á afþreyingar- og ferðamannasvæðinu Stóra-Laxá, veiðihús (svæði AF2) í landi Laxárdals. Með breytingunni verður AF2 tvískipt svæði þar sem gert er ráð fyrir nýju veiðihúsi að lóðinni Bæjarás veiðihús L233313. Breyting verður gerð á greinargerð aðalskipulags- og skipulagsuppdrætti.
Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsbreytinga og nýrra deiliskipulagsáætlana :
- Haukadalur III; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2212020
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 19. desember 2023 að auglýsa deiliskipulagstillögu sem tekur til frístundasvæðis og golfvallar í landi Haukadals III. Í skipulaginu felst skilgreining lóða og byggingarheimilda innan svæðisins.
- Skyggnir L197781; Fjölgun byggingarreita; Deiliskipulagsbreyting – 2207005
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. Janúar 2023 að auglýsa tillögu er varðar breytingu á deiliskipulagi lóðar Skyggnis L197781. Í breytingunni felst að byggingarreitum er fjölgað um tvo auk þess sem legu og lögun reita nr. 2 og 3 er breytt. Byggingarmagn innan núverandi byggingarreita er óbreytt en hámarksbyggingarmagn innan skipulagssvæðisins eykst úr 1.919 fm í 2.290 fm með tilkomu nýrra byggingarreita. Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit fyrir íbúðarhús og bílskúr auk þess sem bætt er við heimildum fyrir 6 smáhýsi.
- Bæjarás; Veiðihús; Laxárdalur 1b og Laxárdalur 2; Deiliskipulag – 2203038
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til veiðihúss að Bæjarási í landi Laxárdals. Innan lóðarinnar er heimilt að byggja allt að 300 fm veiðihús á einni hæð sem þjónar starfsemi tengdri veiðifélagi árinnar. Hús sem gestir geta haft tímabundna gistingu í og þegið þá þjónustu sem verður í boði. Heimilt er að leigja út gistingu til ferðamanna allt árið um kring. Samhliða er auglýst breyting á aðalskipulagi sem tekur til viðkomandi svæðis.
- Klif í landi Spóastaða; L167134 og L192315; Deiliskipulag – 2202035
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 17. mars 2022 að auglýsa tillögu deiliskipulags sem tekur til Klifs í landi Spóastaða. Skipulagið nær yfir liðlega 2,3 hektara á lögbýlinu Klifi L167134. Á landinu eru nú þegar íbúðarhús og sumarhús (landnúmer L192315). Markmið skipulagsins er að skipta landinu í tvær lóðir þar sem nyrðri lóðin verði lögbýlislóð og syðri lóðin íbúðarhúsalóð. Vegtengingar að lóðunum eru til staðar sem og vatn, rafmagn og rotþrær. Samhliða er auglýst breyting á aðalskipulagi sem tekur til svæðisins.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna, www.asahreppur.is www.blaskogabyggd.is, www.floahreppur.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is.
Mál nr. 1 -3 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 19. janúar 2022 til og með 9. febrúar 2023.
Mál nr. 4 – 9 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 19. janúar 2023 með athugasemdafrest til og með 3. mars 2023.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU