16 okt Skipulagsauglýsing sem birtist 17. október 2018
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
1. Breyting á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Garðyrkjulóðin Laugargerði í Laugarási.
Kynnt er skipulags- og matslýsing vegna breytingar á notkun lóðarinnar Laugargerðis í Laugarási en breytingin felur í sér að lóðin verður verslunar- og þjónustulóð í stað landbúnaðarsvæði/garðyrkjulóð. Hyggst lóðareigandi vera með verslun- og veitingarekstur á lóðinni auk garðyrkjustarfsemi.
2. Breyting á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Frístundasvæði merkt F23 og skógræktarsvæði í Eyvindartungu.
Kynnt er skipulags- og matslýsing vegna breytinga á frístundasvæði F23 og skógræktarsvæðis í Eyvindartungu.. Breytingin felur í sér að stærð frístundasvæðis F23 stækkar úr 32 ha í 38 ha. Austan við F23 er skógræktarsvæði sem hefur verið hluti af Suðurlandsskógum frá árinu 1998 og er óskað eftir að svæðið, um 15 ha verði afmarkað inn á aðalskipulagsuppdrátt. Heildarskógræktarsvæði Eyvindatungu SL4 verði því samtals um 150 ha.
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
3. Breyting á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Frístundasvæði merkt F65 landi Fells í Biskupstungum
Kynnt er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 þar sem farið er frá á að breyta lögun og stærð frístundasvæðisins F65 í landi Fells í Biskupstungum. Stækkunin er um 6 ha og verður svæðið eftir breytingu 35 ha.
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
4. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Frístundasvæði merkt F4 í Áshildarmýri.
Auglýst er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps þar sem fyrirhugað er að breyta hluta frístundasvæðisins í Áshildarmýri, merkt F4, í íbúðarsvæði. Forsendur eru þær að með þessu er verið að koma til móts við óskir eigenda frístundahúsa um fasta búsetu á svæðinu. Tillagan er í samræmi við lýsingu að endurskoðun aðalskipulags sem kynnt var í mars/apríl 2017.
5. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Frístundasvæði í landi Kálfhóls.
Auglýst er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps þar sem fyrirhugað er að breyta frístundasvæðis í landi Kálfhóls í íbúðarsvæði og landbúnaðarsvæði. Forsendur eru þær að með þessu er verið að koma til móts við óskir eigenda frístundahúsa um fasta búsetu á svæðinu. Tillagan er í samræmi við lýsingu að endurskoðun aðalskipulags sem kynnt var í mars/apríl 2017.
6. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Frístundasvæði og opið svæði merkt F17/O22 í Sandholti.
Auglýst er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps þar sem fyrirhugað er að breyta svæði merkt F17/O22 í Sandholti úr blandaðri landnotkun frístundasvæðis og opins svæðis til sérstakra nota í íbúðarsvæði. Forsendur eru þær að með þessu er verið að koma til móts við óskir eigenda frístundahúsa um fasta búsetu á svæðinu. Tillagan er í samræmi við lýsingu að endurskoðun aðalskipulags sem kynnt var í mars/apríl 2017.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
7. Deiliskipulag fyrir miðsvæði og garðyrkjulóðir á Flúðum í Hrunamannahreppi.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna stofnunar tveggja lóða á opnu svæði sunnan við félagsheimili og vestan við Ungmennafélagsgarð. Um er að ræða annars vegar lóð fyrir spennistöð og hins vegar fyrir rotþró/hreinsistöð en breytingin er hluti vinnu við uppbyggingu fráveitukerfis sveitarfélagsins innan Flúða.
8. Deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Hests í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir frístundabyggðina en breytingin felur í sér að þakhalli verði gefinn fráls en einnig að veggjahæð upp á efri brún sperru verði hækkuð úr 2.7m frá gólfi upp í 3.4m.
9. Deiliskipulag fyrir Sandskeið, frístundabyggð úr landi Miðfells í Bláskógabyggð.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagi fyrir Sandskeið úr landi Miðfells þar sem gert verður ráð fyrir 100 frístundalóðum. Lóðirnar eru um 2.700 – 11.500m2 að stærð. Markmið deiliskipulagsins er m.a. að koma til móts við eftirspurn í stærri hús en áður var heimilað og sömuleiðis til móts við aukna þörf fyrir endurnýjun og uppbyggingu eldri lóða
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.utu.is.
Skipulagstillögur nr. 1-3 er í kynningu frá 17. október – 7. nóvember 2018 en tillögur nr. 4-9 eru í auglýsingu frá 17. október – 30. nóvember 2018. Athugasemdir og ábendingar við tillögu nr. 1-3 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 7. nóvember 2018 en 30. nóvember fyrir tillögur nr. 4 – 9. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Rúnar Guðmundsson
Skipulagsfulltrúi
runar@utu.is