14 jún Skipulagsauglýsing sem birtist 15. júní 2017 – Aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027
Aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027. Heildarendurskoðun.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Bláskógabyggðar skv. 31. gr. laga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu sbr. 7. gr. laga nr. 105/2006.
Í dag eru í gildi þrjár aðalskipulagsáætlanir sem hver og ein nær yfir eitt af þeim þremur sveitarfélögum sem sameinuðust í Bláskógabyggð árið 2002, þ.e. Laugardalshrepp, Biskupstungnahrepp og Þingvallasveit. Með nýju aðalskipulagi verða svæðin sameinuð í eitt skipulag sem nær yfir allt land sveitarfélagsins og tekur til tímabilsins 2015-2027.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti, hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Dalbraut 12 á Laugarvatni og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík. Þá eru öll gögn aðalskipulagsins aðgengileg rafrænt á heimasíðu Bláskógabyggðar www.blaskogabyggd.is og á heimasíðu skipulags- og byggingarfulltrúa www.sbf.is. Athugasemdir sem fram koma í bréfi Skipulagsstofnunar dags. 25. apríl 2017 liggja frammi með aðalskipulagsgögnum.
Tillagan er í kynningu frá 15. júní til 28. júlí 2017. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til 28. júlí 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum til skipulagsfulltrúa á skrifstofu hans að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni eða á netfangið petur@utu.is.
Skipulagsgögn
Þéttbýlisuppdráttur – Reykholt
Þéttbýlisuppdrátur – Laugarvatn
Þéttbýlisuppdráttur – Laugarás
Athugasemdir Skipulagsstofnunar
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi
petur@utu.is