14 des Skipulagsauglýsing sem birtist 15. desember 2016
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar lýsingar fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:
1. Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjarhrepps 2004-2016 á svæði austan við Árnes (Réttarholt A). Svæði fyrir verslun- og þjónustu í staði landbúnaðarsvæðis.
Lögð fram til kynningar lýsing skipulagsverkefnis vegna breytingar á aðalskipulagi sem nær til svæðis sem liggur upp að þéttbýlinu Árnes. Er fyrirhugað að byggja þar upp þjónustu í tengslum við hestaferðir og er m.a. er gert ráð fyrir byggingu gistiaðstöðu og þjónustuhúss. Svæðið sem er rúmlega 9 ha að stærð er í dag skilgreint sem landbúnaðarsvæði en með breytingunni er gert ráð fyrir að svæðið breytist að hluta í verslunar- og þjónustusvæði.
(Lýsing aðalskipulagsbreytingar)
2. Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 vegna Hvammsvirkjunar. Afmörkun lónstæðis.
Árið 2011 var staðfest breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem gert var ráð fyrir Hvammsvirkjun. Fólst breytingin m.a. í afmörkun Hagalóns auk breyttrar legu Þjórsárdalsvegar. Á skipulagsuppdrættinum láðist þó að gera ráð fyrir færslu austasta hluta Gnúpverjavegar og afmörkun um 10 ha totu Hagalóns sem liggur ofan Þjórsárdalsvegar. Nú er hér kynnt lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi þar sem þetta er lagfært, veginum breytt og lónið afmarkað ofan Þjórsárdalsvegar.
(Lýsing aðalskipulagsbreytingar)
3. Breyting á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar fyrir Þingvallasveit 2004-2016. Ákvæði um deiliskipulag.
Árið 2006 var staðfest aðalskipulag fyrir Bláskógabyggð fyrir svæði sem var áður innan fyrrum Þingvallasveitar. Í greinargerð aðalskipulagsins var sett sú stefna að unnið yrði að gerð deiliskipulags fyrir öll svæði sem ekki voru með lögformlegt deiliskipulag og að fjórum árum eftir staðfestingu yrði ekki heimilt að gefa út byggingarleyfi nema á grundvelli deiliskipulags. Frá þvi að aðalskipulagið tók gildi hefur reynst erfitt að koma í gegn deiliskipuagsáætlunum fyrir eldri frístundabyggðarsvæði og er því talið nauðsynlegt að heimila útgáfu byggingarleyfa á grundvelli grenndarkynningar eins og heimilt er á öðrum svæðum innan sveitarfélagsins.
(Lýsing aðalskipulagsbreytingar)
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
4. Deiliskipulag lóðar fyrir smáhýsi í landi Skarðs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Auglýst tillaga að deiliskipulagi um 0,67 ha lóðar úr landi Skarðs sem staðsett er rétt sunnan bæjartorfu jarðarinnar. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir byggingu nokkurra smáhýsa sem samtals geta verið allt að 200 fm að stærð.
5. Deiliskipulag fyrir 11 gistihús í landi Urriðafoss í Flóahreppi.
Auglýst tillaga að deiliskipulagi um 2 ha svæðis úr landi Urriðafoss sem liggur milli Urriðafossvegar og Þjórsár rétt suðvestan við fossinn Urriðafoss. Afmarkaðir eru tveir byggingarreitir. Á svæði merkt B1 verður heimilt að byggja 5 allt að 120 fm hús og á svæði merkt B2 verður heimilt að byggja 6 allt að 80 fm hús. Aðkoma að svæðinu verður frá vegi sem liggur frá Urriðafossvegi að bílastæði við fossinn.
6. Deiliskipulag fyrir bæjartorfu Sumarliðabæjar 2 í Ásahreppi.
Auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir Sumarliðabæ 2 þar sem fyrirhugað er nýta jörðina fyrir hestaræktun. Eru afmarkaðir byggingarreitir fyrir íbúðarhús, reiðhöll og tengibyggingar, gestahús, reiðvöll, geymslur, starfsmannahús o.fl.
Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar varðandi eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
7. Deiliskipulag frístundabyggðar á spildu úr landi Bíldsfells í Grímsnes- og Grafningshreppi. Bíldsfell 6 land 5.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi 7. desember 2016 tillögu að deiliskipulagi 11 frístundahúsalóða á um 9,3 ha spildu sem kallast Bíldsfell 6 land 5. Tillagan var auglýst 1. september 2016 með athugasemdafresti til 14.október. Athugasemdir bárust og var tillagan samþykkt með breytingu hvað varðar aðkomu að svæðum sunnan við skipulagssvæðið.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.sbf.is.
Skipulagstillögur 1-3 eru í kynningu frá 15. desember 2016 til 4. janúar 2017 en tillögur 4-6 frá 15. desember 2016 til 27. janúar 2017. Athugasemdir og ábendingar við tillögur 1-3 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 4. janúar 2017 en 27. janúar fyrir tillögur 4-6. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi
petur@sudurland.is