01 feb Skipulagsauglýsing birt 1. febrúar 2024
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð og Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur eftirfarandi aðalskipulagsbreytinga:
- Þjóðgarðurinn á Þingvöllum; Stækkun á VÞ2, Valhallarstígur Nyrðri 8 úr F í VÞ, vatnsból á VB3; Breyting á aðalskipulagi – 2309040
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 17. janúar 2023 að kynna tillögu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Viðfangsefni breytingarinnar er þríþætt og tengist uppbyggingu innviða innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Í fyrsta lagi er um að ræða stækkun á verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ2 þar sem gert er ráð fyrir byggingu tveggja nýrra þjónustumiðstöðva og öðrum innviðum, s.s. 550 – 700 bílastæðum. Í öðru lagi er um að ræða skilgreiningu tveggja nýrra vatnsbóla og ásamt tilheyrandi vatnsverndarsvæðum (brunn-, fjar- og grannsvæða). Í þriðja lagi er um að ræða nýtt verslunar- og þjónustusvæði við Valhallarstíg, sunnan við Kúatorfu (Valhallarstígur Nyrðri 8).
- Útey 2 L167648; Mýrarskógur og Eyjavegur; Breyttir landnotkunarflokkar; Aðalskipulagsbreyting – 2212016
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 17. janúar 2023 að kynna tillögu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 vegna Mýrarskógar og Eyjavegar. Breytingin nær til þess hluta af frístundasvæði F21 sem er innan Úteyjar 2 L167648 auk nýrra svæða austan Laugarvatnsvegar. Reitur F21 nær yfir nokkrar jarðir, innan framlagðrar breytingartillögu er eingöngu lagt til að breyta þeirri landnotkun sem er innan Úteyjar 2. Í henni felst tilfærsla á frístundasvæði í landbúnaðarsvæði og öfugt.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Reykholt; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2306088
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 20. desember 2023 að auglýsa tillögu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 innan þéttbýlisins í Reykholti. Í breytingunni felst m.a. heimild til stækkunar á hóteli að Skólavegi 1 úr 40 gistirýma hóteli á 1-2 hæðum í 120 gistirýma hótel á allt að þremur hæðum. Gatan Tungurimi hefur verið hönnuð og er færð um 15 m til norðvesturs, landnotkun og lóðir umhverfis götuna eru aðlagaðar að breyttri legu hennar innan breytingarinnar. Þá verður gamla leikskólanum á Reykholtsbrekku 4 breytt úr samfélagsþjónustu í verslunar- og þjónustusvæði auk þess sem byggingarheimild við núverandi leikskóla er aukin.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana.
- Apavatn 2 lóð L167670; Byggingarskilmálar; Deiliskipulag – 2401015
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 17. janúar 24 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til lóðar Apavatns2 lóð, L167670. Í skipulaginu felst heimild til viðbyggingar við núverandi sumarhús innan lóðarinnar auk 40 fm gestahúss og 15 fm geymslu innan nýtingarhlutfall 0,03.
- Myrkholt L217197; Verslunar- og þjónustulóð; Deiliskipulag – 2401013
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 17. janúar 2024 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til verslunar- og þjónustusvæðis VÞ25 í landi Myrkholts 1. Í deiliskipulaginu fellst heimild til stækkunar á núverandi húsi um allt að 600 fm. Ennfremur er gert ráð fyrir byggingum ætlaðar fyrir ferðaþjónustu og henni tengdri s.s. nýtt gistihús, smáhýsi og starfsmannahús. Heildarflatarmál bygginga á lóðinni má ekki fara yfir 2.300 fm, fjöldi gistirúma má vera allt að 80.
- Efra-Apavatn 1B L226188; Skilgreining frístundalóðar; Deiliskipulag – 2311089
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 17. janúar 2024 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til lóðar Efra-Apavatns 1B L226188. Innan skipulagsins er gert ráð fyrir því að heimilt verði að reisa frístundahús allt að 250 fm auk bílskúrs/skemmu að 100 fm.
- Minni-Núpur L166583; Frístundasvæði; Deiliskipulag – 2309099
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 24. janúar 2024 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til frístundasvæðis í landi Minna-Núps L166583. Í tillögunni felst skilgreining byggingarreitar og byggingarheimildar á 8.760 fm lóð þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu á frístundahúsi ásamt tveimur gestahúsum.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna, www.blaskogabyggd.is og www.skeidgnup.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunnar skipulagsgatt.is/.
Mál 1 – 2 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 1. febrúar 2024 með athugasemdafresti til og með 22. febrúar 2024.
Mál 3 – 7 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 1. febrúar 2024 með athugasemdafrest til og með 15. mars 2024.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is. Bendum jafnframt á að málin eru aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU