30 jan Skipulagsauglýsing birt 30. janúar 2025
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Ásahreppur, Flóahreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps; Stækkun á Búðanámu; Aðalskipulagsbreyting – 2411052
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum 22. janúar s.l. tillögu aðalskipulagsbreytingar til kynningar. Breytingin felur í sér stækkun á Búðanámu vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Búðafossvegi. Stærð námunnar er 1 ha og heimiluð efnistaka er 50.000 m3. Náman verður stækkuð í 4,5 ha og efnismagn sem heimilt verður að taka er hækkað í 60.000 m3.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Aðalskipulag Flóahrepps 2017-2029; Nýtt vatnsból og vatnsverndarsvæði í Áshildarmýri; Aðalskipulagsbreyting – 2408073
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum 15. október 2024, aðalskipulagsbreytingu til auglýsingar, sem tekur til skilgreiningar á vatnsbóli í landi Hjálmholts. Vatnsbólið er í Flóahreppi en vatnsverndarsvæði er skilgreint þvert á sveitarfélagsmörk í Flóahreppi og Skeiða og Gnúpverjahreppi. Borað hefur verið eftir vatni á staðnum og er vatnsbólið í notkun. Samhliða er gerð breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 þar sem gerð er grein fyrir vatnsverndarsvæði.
Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytingar:
- Sauðholt 2 L193421; Skilgreining tveggja frístundalóða, Slot og Hof; Deiliskipulag – 2412067
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum 22. janúar 2025, deiliskipulag til auglýsingar sem í felst skilgreining tveggja frístundalóða. Á hvorri lóð er heimilt að byggja sumarhús, gestahús og geymslu/áhaldahús. Aðkoma að lóðunum er um nýjan slóða af heimreið að Sauðholti 2. Gert er ráð fyrir að lóðirnar fái staðvísana Slot og Hof.
- Efra-Langholt land 2 L219044; Tamningastöð og reiðskóli, 4 gestahús; Nýbýli; Fagurhólsbrekka; Deiliskipulag – 2501021
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum 16. janúar 2025, deiliskipulag til auglýsingar sem tekur til lands Efra-Langholts 2, L219044. Innan deiliskipulagsins er gert ráð fyrir að landið fái staðfangið Fagurhólsbrekka. Í deiliskipulaginu felst heimild fyrir uppbyggingu á nýju býli til ábúðar þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu á íbúðarhúsi ásamt tamningarstöð og reiðskóla. Auk þess er gert ráð fyrir heimild sem tekur til uppbyggingar á allt að fjórum gestahúsum.
- Markhóll L230917; Skilgreining landsspildu, íbúðarhús, 2 gestahús og skemma; Deiliskipulag – 2501020
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum 22. janúar 2025, deiliskipulag til auglýsingar sem tekur til skilgreiningar á byggingarreit og byggingarheimildum innan spildunnar Markhóls L230917 úr landi Kálfhóls. Innan skipulagsins er gert ráð fyrir heimild fyrir íbúðarhúsi, bílskúr, skemmu auk tveggja gestahúsa.
- Minni-Ólafsvellir L166482; Breytt landnotkun; Deiliskipulagsbreyting – 2501019
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum 22. janúar 2025 að auglýsa tillögu deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Minni-Ólafsvalla L166482. Í breytingunni felst aukning á heimildum fyrir uppbyggingu á svæðinu í takt við breytingu á aðalskipulagi þar sem skilgreint var verslunar- og þjónustusvæði og íbúðarbyggð. Innan byggingarreita A1, A3 og A4 er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 10 gestahús, íbúðarhús auk bygginga tengdum hestamennsku. Hámarksbyggingarmagn er 1.200 fm. Á reit A2 er gert ráð fyrir allt að þremur íbúðum, sambyggðum eða stakstæðum. Hámarksbyggingarmagn er 600 fm.
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi óverulegrar breytingar á aðalskipulagi:
- Hjálmholt L166235; Breytt lega frístundasvæði F22; Óveruleg aðalskipulagsbreyting – 2406056
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum 21. janúar 2025, tillögu óverulegrar breytingar á aðalskipulagi sem tekur til breyttrar legu frístundasvæðis F22, Hvítárbyggð L238531 sem áður var hluti jarðarinnar Hjálmholt. Breytingin tekur eingöngu til skilgreindrar legu svæðisins innan fyrrgreinds lands, engar breytingar eru gerðar sem taka til skilmála svæðisins.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna www.asahreppur.is , www.floahreppur.is , www.fludir.is og www.skeidgnup.is.
Mál 1 innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 30. janúar 2025 með athugasemdarfresti til og með 21. febrúar 2025.
Mál 2 – 6 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 30. janúar 2025 með athugasemdarfresti til og með 14. mars 2025.
Mál 7 er tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita