Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Hvammsvirkjun

Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna Hvammsvirkjunar:

Sveitarstjórnir Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúverjahrepps samþykktum á fundum sínum þann 16. og  24. október 2024 útgáfu framkvæmdaleyfa vegna framkvæmda við uppbyggingu Hvammsvirkjunar sem staðsett verður í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Í framkvæmdinni felst uppbygging á virkjun Þjórsár norður af Skarðsfjalli. Inntakslón hennar, Hagalón, verður í farvegi Þjórsár norður af Skarðsfjalli. Lónið verður í um 116 m y.s. og um 4 km2 að stærð og rúmmál lónsins verður um 13,2 milljón m3. Stöðvarhús verður að mestu leyti neðanjarðar við norðurenda Skarðsfjalls, í landi Hvamms 1 í Landsveit. Fyrirhuguð Hvammsvirkjun er vatnsaflsvirkjun staðsett á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár þar sem í dag eru sjö vatnsaflsstöðvar og verður virkjunin áttunda og neðsta stöðin. Hvammsvirkjun mun nýta allt að 352 m3/s rennsli og 32 m fall Þjórsár á um 9 km kafla frá svokölluðu Yrjaskeri, rétt ofan við bæinn Haga, og niður fyrir Ölmóðsey, austan við Þjórsárholt. Virkjunin nýtir miðlað rennsli Þjórsár frá lónunum ofar á vatnasviðinu. Flest mannvirki virkjunarinnar verða staðsett innan Rangárþings ytra en virkjunarsvæðið er staðsett innan beggja sveitarfélaganna. Gert er ráð fyrir að afl virkjunar verði 95 MW og árleg orkuvinnsla um 740 GWh. Framkvæmdaleyfin taka til allra þeirra framkvæmda við Hvammsvirkjun sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps á vegum Landsvirkjunar, þó ekki til þeirra framkvæmda sem teljast háðar útgáfu byggingarleyfa. Umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast hér https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun og á www.skipulagsgatt.is .

Ákvörðun sveitarstjórna um samþykkt framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingarblaði.  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is

Fh. Rangárþings ytra

Haraldur Birgir Haraldsson

Fh. Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Vigfús Þór Hróbjartsson