10 mar Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 24. febrúar 2015
Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 15-02. fundur
haldinn Laugarvatn, 24. febrúar 2015
og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Helgi Kjartansson, Byggingarfulltrúi
Pétur Ingi Haraldsson, Skipulagsfulltrúi
Guðjón Þórisson, Áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Helgi Kjartansson, byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. | Vatnsholt 2: Umsögn um rekstrarleyfi: Endurnýjun og breyting á leyfi. – 1501035 | |
Óskað er eftir umsögn um endurnýjun og breytingu á rekstrarleyfi fyrir ferðaþjónustuna í Vatnsholti 2 | ||
Ekki er gerð athugasemd við rekstur gististaðar, heimagistingar og veitingastaðar í mannvirkjum að Vatnsholti 1 166396, Gistiheimili og þrír svefnskálar og að Vatnsholti 2 166398, heimagisting í íbúðarhúsi, gistiheimili og veitingastaður í fyrrum útihúsum, að undanskilinni gistingu í fjórum íbúðargámum sem eingöngu hafa fengið stöðuleyfi. | ||
2. | Þórsstígur 29: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1502064 | |
Óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi i flokki II – gisting í gestahúsi við sumarhús. | ||
Byggingarfulltrúi gerir athugasemd við að veitt verði rekstrarleyfi fyrir hluta eignarinnar þar sem það hefur verið mat embættisins og skipulagsnefndar að heimilt sé að leigja út sumarhús í skipulögðum sumarhúsahverfum í heild sinni. Leiga á einstökum herbergjum eða hluta fasteignar fellur undir heimagistingu eða gistiheimili sem ekki er talin heimil í frístundahverfum. | ||
3. | Skálabrekkugata 1c: Umsögn um rekstrarleyfi: Endurnýjun – 1502067 | |
Umsögn um starfsleyfi í fl. II; sumarhús gisting – endurnýjun. | ||
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við endurnýjun á rekstrarleyfi vegna útleigu á fjórum sumar/ferðaþjónustuhúsum | ||
4. | Kerhraun 5: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1502070 | |
Umsögn um flokk II; Gisting í sumarhúsi | ||
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt verði leyfi til útleigu hússins í heild sinni enda séu mannvirki og frágangur á lóð í samræmi við samþykktar teikningar. Ekki verði um að ræða útleigu á einstökum herbergjum og/eða veitingastarfsemi. Óskað er eftir að afrit af leyfi sé sent til viðkomandi sveitarfélags þegar það er gefið út. | ||
5. | Þóroddsstaðir lóð 4: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1502073 | |
Umsögn um rekstrarleyfi í flokki II: gisting í sumarhúsi. | ||
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt verði leyfi til útleigu hússins í heild sinni enda séu mannvirki og frágangur á lóð í samræmi við samþykktar teikningar. Ekki verði um að ræða útleigu á einstökum herbergjum og/eða veitingastarfsemi. Óskað er eftir að afrit af leyfi sé sent til viðkomandi sveitarfélags þegar það er gefið út. | ||
6. | Álfasteinssund 22 : Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1502014 | |
Sótt er um leyfi í flokki II gisting í sumarhúsi | ||
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt verði leyfi til útleigu hússins í heild sinni enda séu mannvirki og frágangur á lóð í samræmi við samþykktar teikningar. Ekki verði um að ræða útleigu á einstökum herbergjum og/eða veitingastarfsemi. Óskað er eftir að afrit af leyfi sé sent til viðkomandi sveitarfélags þegar það er gefið út. | ||
7. | Útey 1 lóð 168180: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1502065 | |
Umsögn um rekstrarleyfi í flokki II; sumarhús. | ||
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt verði leyfi til útleigu hússins í heild sinni enda séu mannvirki og frágangur á lóð í samræmi við samþykktar teikningar. Ekki verði um að ræða útleigu á einstökum herbergjum og/eða veitingastarfsemi. Óskað er eftir að afrit af leyfi sé sent til viðkomandi sveitarfélags þegar það er gefið út. | ||
8. | Vatnsholt 2: Umsókn um byggingarleyfi: Hesthúsi breytt í veitingasal – 1412005 | |
Sótt er um að breyta hesthúsi í veitingasal, stærðir hússins breytast ekki. | ||
Umsókn um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun mannvirkis er samþykkt. | ||
9. | Neðra-Apavatn lóð 169300: Umsókn um byggingarleyfi: Gestahús/aukahús – 1501060 | |
Granni mál nr.201409575642. Sótt er um leyfi til að byggja gestahús/aukahús úr timbri 26,2 ferm. | ||
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð. | ||
10. | Eskilundur 7: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1502043 | |
Lagðar fram reyndarteikningar að lokinni byggingu sumarhús. Húsið er 8,5 ferm og 22,8 rúmm stærra en upphaflegar teikningar sögðu til um. | ||
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. | ||
11. | Dalbraut 10: Umsókn um byggingarleyfi: Stækkun á farfuglaheimili. – 1502015 | |
Frestað vegna athugasemda við teikningar. | ||
12. | Útey 1 lóð 168174: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1502047 | |
Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús úr timbri, 115,2 ferm. og 406 rúm. | ||
Frestað vegna athugasemda við uppdrætti. | ||
13. | Skyggnisbraut 10: Umsókn um byggingarleyfi: Geymsla/gestahús – 1502051 | |
Granni 20140627-5492. Leyfi til að byggja geymslu/gestahús á steyptum kjallara með timbur hæð, 20 m2 að grunnfleti. Húsið er alls 40 ferm og 105 rúmm. | ||
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð. | ||
14. | Ljósafossskóli sundla 168930: Umsókn um byggingarleyfi: Breyting – 1502052 | |
Granni 50140420-5319. Breyting á notkun húss – Sótt er um að breyta sundlaugarhúsi í parhús, stærð hússins breytist ekki. | ||
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. | ||
15. | Ásland 166989: Umsókn um byggingarleyfi: Gróður- og pökkunarhús – 1502056 | |
Leyfi til að byggja gróður- og pökkunarhús. Heildarstærð 79,7 ferm. og 327,6 rúmm. | ||
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð. | ||
16. | Snorrastaðir lóð 168083: Umsókn um byggingarleyfi: Viðbygging – 1502058 | |
Leyfi til að byggja við núverandi sumarhús 5,6 ferm og 13,7 rúmm. úr timbri. Heildarstærð 50,7 ferm. og 149,3 rúmm. | ||
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð. | ||
17. | Villingavatn 170953: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús og gestahús. – 1502054 | |
Lagðar fram reyndarteikningar af sumarhúsinu með lagnakjallara undir hluta hússins. Húsið er óbreytt af öðru leyti. | ||
Vísað til skipulagsnefndar. | ||
18. | Reynilundur 6: Umsókn um byggingarleyfi: Viðbygging sumarhús – 1502024 | |
Granni 20141111-5716. Sótt er um viðbyggingu á sumarhús úr timbri,stærð 3 ferm. Eftir stækkun 39,5 ferm. | ||
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. | ||
19. | Mosaskyggnir 11: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1502063 | |
Leyfi til byggja sumarhús úr timbri 155,9 ferm og 478,9 rúmm. | ||
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð. | ||
20. | Sundlaugin Reykholti 167194: Umsókn um byggingarleyfi: Breyting í kjallara hús – 1501034 | |
Granni mál nr. 201411835759 Sótt er um að breyta innra fyrirkomulagi neðri hæðar þar sem innréttaður verður líkamsræktarsalur, nuddstofa, salerni fyrir fatlaða og lyfta sett í húsið. | ||
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð. | ||
21. | Ásabraut 21: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús og gestahús – 1502078 | |
Granni 20140952-5662. Leyfi til að byggja sumarhús 74,7 ferm. auk gestahús 40 ferm. úr timbri á steyptan sökkul. Samtals 114,7 ferm. og 376,7 rúmm. | ||
Frestað vegna athugasemda. | ||
22. | Sogsvegur 13: Umsókn um byggingarleyfi: Viðbygging – 1501055 | |
Granni mál 201501325788. Sótt er um viðbyggingu. | ||
Umsókn um byggingarleyfi er hafnað þar sem húsið uppfyllir ekki kröfur byggingarreglugerðar um einangrunargildi. | ||
23. | Hrepphólar166767 : Umsókn um byggingarleyfi: Haugþró – 1502091 | |
Leyfi til að byggja haugþró úr forsteyptum einingum frá Ístak hf. Stærð 304,8 ferm. og 1.280,2 rúmm. | ||
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. |