Meiraprófsbílstjórar óskast hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. leitar eftir tveimur meiraprófsbílstjórum til starfa. Störfin tilheyra seyruverkefni embættisins sem sex sveitarfélög standa að. Störfin eru lifandi, fjölbreytt og kalla jöfnum höndum á teymisvinnu og einstaklingsframtak.

Fjölbreytt verkefni, góður tækjakostur og aðstaða.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Móttaka á seyru.
  • Ráðgjöf og upplýsingagjöf.
  • Samskipti.
  • Viðhald og viðgerðir á tækjum af öllum stærðum og gerðum.
  • Skráning og meðhöndlun skjala.
  • Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Meirapróf er skilyrði.
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Rík þjónustulund, samskiptahæfni og sveigjanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Góð almenn tölvukunnátta er kostur.
  • Nákvæm og vönduð vinnubrögð.
  • sjálfstæði í starfi.

 

Háannatími seyruverkefnisins er yfir sumartímann. Störfin henta öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um.

Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.

Starfsstöð seyruverkefnisins er á Flúðum og aðalstarfstöð Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita er staðsett á Laugarvatni.

Nánari upplýsingar veitir

Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri – nanna@utu.is – 480-5550

Umsókn skal jafnframt senda á þetta sama netfang. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 4. nóvember nk.