1. gr.
Gildissvið
Gjaldskráin gildir um meðferð og útgáfu leyfa sem embættið veitir, ásamt þjónustu og eftirliti sem embættið sinnir á starfssvæði sínu sem er innan aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins; Ásahrepps, Bláskógabyggðar, Flóahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
2. gr.
Meginreglur
Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að sá aðili sem sækir um byggingarheimild eða byggingarleyfi, óskar eftir þjónustu eða sætir eftirliti af hálfu byggingarfulltrúa skuli greiða þann kostnað sem leyfisveiting, þjónusta eða eftirlit hefur í för með sér, sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna umsýslu málsins, móttöku þess, yfirferð aðal- og séruppdrátta, útmælingar, úttektir, útgáfu vottorða og skráningarvinnu sem og nauðsynlegar auglýsinga og kynningu sem afgreiðsla málsins kann að fela í sér. Jafnframt skal umsækjandi greiða fyrir aðra þá þjónustu sem embætti byggingarfulltrúa veitir, skv. þessari gjaldskrá.
3. gr.
Innheimta gjalda
Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. skal innheimta gjöld samkvæmt þessari gjaldskrá fyrir hönd aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins.
Gjöld vegna útgáfu byggingarheimildar eða byggingarleyfis skiptast í afgreiðslugjald annars vegar og eftirlits- og yfirferðargjald hins vegar. Afgreiðslugjaldið skal endurspegla kostnað embættisins við móttöku erindisins, skráningu þess og skjalavistun, yfirferð aðaluppdrátta og annarra gagna sem nauðsynleg eru fyrir ákvarðanatöku á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Greiðsla afgreiðslugjalds er óafturkræft þótt erindi sé synjað eða það dregið til baka ef vinna byggingarfulltrúa hefur átt sér stað og málið tekið fyrir á afgreiðslufundi. Eftirlits- og yfirferðargjald skal endurspegla kostnað embættisins við útgáfu byggingarheimildar eða byggingarleyfis eftir afgreiðslufund byggingarfulltrúa. Í því felst yfirferð séruppdrátta, raflagnauppdrátta, áritun og stimplun teikninga, útgáfa byggingarheimildar eða byggingarleyfis, útsetning húss á byggingarstað, lögbundið eftirlit með byggingarframkvæmdum s.s. stöðuskoðanir, öryggis- og lokaúttektir ásamt skráningu húss hjá Þjóðskrá Íslands. Gjaldskráin miðast við eina yfirferð hönnunargagna.
Gjaldskrá byggingarheimilda og byggingarleyfisgjalda miðast við þann áætlaða tímafjölda sem fer í hvern verkþátt og myndar þannig þau viðmiðunarverð sem birtast í þessari gjaldskrá. Tekið er tillit til umfangsflokkunar mannvirkja skv. grein 1.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum þar sem segir að gefa skuli út byggingarheimild á mannvirki sem falla undir umfangsflokk 1 en byggingarleyfi á mannvirki sem falla undir umfangsflokka 2 og 3. Akstur byggingarfulltrúa vegna málsins er innifalinn í gjöldum.
Ef tími byggingarfulltrúa er verulega umfram áætlaðan tímafjölda eða kostnaður vegna aðkeyptrar vinnu er hærri en áætlað var vegna umfangs verksins, er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald byggingarfulltrúa sem er 17.300 kr./klst., eða gjald skv. reikningi vegna aðkeyptrar vinnu. Heimilt er að gera sérstakan skriflegan samning um kostnað og útfærslu byggingareftirlits í viðameiri framkvæmdum, s.s. fyrir hús stærri en 2.000 m² og sérhæfð mannvirki sem almenningi er ætlað að eiga aðgengi að.
Ef umsókn um byggingarheimild eða byggingarleyfi samræmist ekki gildandi skipulagi er erindi hafnað eða það sent til skipulagsfulltrúa til meðferðar, sem þá innheimtir skv. sinni auglýstu gjaldskrá fyrir þann hluta sem að honum snýr og verða þau gjöld eftir atvikum innheimt samtímis innheimtu á gjöldum vegna fyrirhugaðrar útgáfu byggingarheimildar eða byggingarleyfis.
4. gr.
Gjalddagi
Gjöld vegna útgáfu byggingarheimildar eða byggingarleyfis, þ.e. afgreiðslugjald og eftirlits- og yfirferðargjald, skal alla jafna innheimt saman með einum reikningi að loknum afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem viðkomandi mál var afgreitt. Í stærri framkvæmdum eða ef umsækjandi veit að framkvæmdir hefjast ekki strax þrátt fyrir samþykkt byggingaráform, er heimilt ef umsækjandi óskar eftir, að skipta innheimtunni þannig að aðeins afgreiðslugjald sé innheimt að loknum afgreiðslufundi og eftirlits- og yfirferðargjald sé innheimt síðar. Eftirlits- og yfirferðargjald skal þó undantekningalaust vera að fullu greitt áður en byggingarheimild eða byggingarleyfi er gefið út. Gjald vegna stöðuleyfa skal greitt áður en stöðuleyfi er útgefið. Önnur þjónustugjöld skulu greiðast samhliða því að verk er unnið.
5. gr.
Gjöld vegna byggingarheimilda og byggingarleyfa
*Umfangs-flokkur | Afgreiðslugjald: | Eftirlits- og yfirferðargjald: | Samtals: | |
Endurútgefin samþykkt byggingaráform, byggingarheimild eða byggingarleyfi, – gögn óbreytt : 1 | 73.700 kr. | 73.700 kr. | ||
Sumarhús: | 1 | 112.700 kr. | 212.400 kr. | 325.100 kr. |
Íbúðarhús, einbýli: | 2 | 112.700 kr. | 260.200 kr. | 372.900 kr. |
Raðhús, parhús: | 2 | 134.400 kr. | 381.500 kr. | 515.900 kr. |
Þjónustuhúsnæði, gistiheimili, atvinnu- og iðnaðarhúsnæði, 41 – 150 m2: |
2 | 112.700 kr. | 251.400 kr. | 364.100 kr. |
Þjónustuhúsnæði, gistiheimili, atvinnu- og iðnaðarhúsnæði, 151-500 m2: |
2 | 190.800 kr. | 515.900 kr. | 706.700 kr. |
Þjónustuhúsnæði, gistiheimili, atvinnu- og iðnaðarhúsnæði, 501 – 1.000 m2: |
2 | 251.400 kr. | 611.400 kr. | 862.800 kr. |
Þjónustuhúsnæði, gistiheimili, atvinnu- og iðnaðarhúsnæði, 1.001 – 3.000 m2: |
2 | 268.800 kr. | 715.400 kr. | 984.200 kr. |
Fjölbýlishús, 2 – 4 hæðir: | 2 | 199.300 kr. | 663.500 kr. | 862.800 kr. |
Fjölbýlishús, 5 hæðir og hærri: | 2 | 260.000 kr. | 741.500 kr. | 1.001.500 kr. |
Önnur hús, skýli og viðbyggingar, 40 m2 eða minni: | 1 | 69.400 kr. | 108.300 kr. | 177.700 kr. |
Önnur hús og viðbyggingar, 41-150 m2 s.s. geymslur og landbúnaðarbyggingar: | 1 | 95.300 kr. | 225.500 kr. | 320.800 kr. |
Önnur hús og viðbyggingar, 151-500 m2 s.s. geymslur og landbúnaðarbyggingar: | 1 | 112.700 kr. | 225.500 kr. | 338.200 kr. |
Önnur hús og viðbyggingar, 501-1.000 m2 s.s. geymslur og landbúnaðarbyggingar: | 1 | 164.600 kr. | 316.600 kr. | 481.200 kr. |
Önnur hús og viðbyggingar, 1.001-2.000 m2 s.s. geymslur og landbúnaðarbyggingar: | 1 | 199.400 kr. | 368.500 kr. | 567.900 kr. |
Eldri hús flutt á milli lóða, 41 – 150 m2: | 1 | 86.600 kr. | 186.500 kr. | 273.100 kr. |
Viðbyggingar við þegar byggð hús, 41 – 150 m2: | 1 | 86.800 kr. | 160.300 kr. | 247.100 kr. |
Viðbyggingar við þegar byggð hús, 151 – 500 m2: | 1 | 86.600 kr. | 182.200 kr. | 268.800 kr. |
Takmarkað byggingarleyfi / graftraleyfi: | 1 | 34.700 kr. | 39.000 kr. | 73.700 kr. |
Óeinangraðar skemmur, geymslur, gróðurhús og opin skýli, allt að 1.000 m2: | 1 | 78.000 kr. | 208.100 kr. | 286.100 kr. |
Óeinangraðar skemmur, geymslur, gróðurhús og opin skýli, 1.001 – 5.000 m2: | 1 | 95.400 kr. | 268.800 kr. | 364.200 kr. |
Minniháttar breytingar á innra eða ytra skipulagi bygginga – án stækkunar: | 1, 2 | 82.300 kr. | 121.400 kr. | 203.700 kr. |
Meiriháttar breytingar á innra eða ytra skipulagi bygginga – án stækkunar: | 1, 2 | 47.800 kr. | 73.600 kr. | 121.400 kr. |
Breyting á notkun húsnæðis: | 1, 2 | 78.000 kr. | 91.100 kr. | 169.100 kr. |
Tjaldhýsi og stöðuhýsi, sbr. gr. 2.3.6 í byggingarreglugerð: | 1 | 60.500 kr. | 104.200 kr. | 164.700 kr. |
Tilkynningarskyldar framkvæmdir, sbr. gr. 2.3.6 í byggingarreglugerð og aðrar minniháttar framkvæmdir s.s. breyting á klæðningu utanhúss, heitir og kaldir pottar og lítilsháttar breyting á burðarvirki, skilti, girðingar og skjólveggir: | 1 | 78.000 kr. | 78.000 kr. | |
Niðurrif – afskráning fasteigna: | 1 | 13.000 kr. | 10.400 kr. | 23.400 kr. |
Veitumannvirki, dæluhús og spennistöðvar 0-100 m2, möstur: | 1 | 60.700 kr. | 47.600 kr. | 108.300 kr. |
Synjun á erindi (minniháttar framkvæmd): | 34.700 kr. | 34.700 kr. | ||
Stærri framkvæmdir sem falla undir umfangsflokkun 2 og 3: | 2, 3 | Skv. samn. |
6. gr.
Úttektir
Stöðuúttekt, s.s. vegna byggingarstjóra-/iðnmeistaraskipta: | 34.700 kr. – | ||
Endurtekin lokaúttekt: | 34.700 kr. – | ||
Úttekt vegna rekstrarleyfis – ásamt vottorði: | 17.400 kr/klst. | ||
Gjald fyrir hvert útkall ef verkið er ekki úttektarhæft: | 17.400 kr. – |
7. gr.
Stöðuleyfi og auglýsingaskilti
Afgreiðslugjald: | Eftirlits- og yfirferðargjald: | Samtals: | |
Stöðuleyfi vegna gáma, hjólhýsa, báta o.fl., að hámarki til 12 mánaða: |
21.600 kr. | 21.600 kr. | 43.200 kr. |
Stöðuleyfi fyrir sumarhús í smíðum, ætlað til flutnings, að hámarki til 12 mánaða: |
60.700 kr. | 62.400 kr. | 123.100 kr. |
Leyfisgjald fyrir stök auglýsingaskilti, að hámarki til 12 mánaða: |
73.700 kr. | 73.700 kr. |
8. gr.
Önnur þjónustugjöld
Auka útsetning lóðar/húss, gjald pr. mælingu: | 34.700 kr. – | ||
Hver endurskoðun séruppdrátta, (kr./klst.): | 17.300 kr/klst. | ||
Yfirferð teikninga ef umfram hefðbundið, (kr/klst.): | 17.300 kr/klst. | ||
Gjöld vegna aðkeyptrar vinnu við yfirferð séruppdrátta, (stærri verkefni): | skv. reikn. | ||
Yfirferð og staðfesting eignaskiptayfirlýsingar, 2 – 4 eignir: | 52.100 kr. – | ||
Yfirferð og staðfesting eignaskiptayfirlýsingar, 5 – 15 eignir: | 69.400 kr. – | ||
Yfirferð og staðfesting eignaskiptayfirlýsingar, 16 – 49 eignir: | 86.800 kr. – | ||
Yfirferð og staðfesting eignaskiptayfirlýsingar, 50 eignir eða fleiri: | 104.000 kr. – |
9. gr.
Gjaldtökuheimild og breytingar á fjárhæð gjalda
Leyfisgjöldum fylgja lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð sem við á og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi án undangengins dóms eða réttarsáttar skv. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Samþykkt byggingaráform falla úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan 2ja ára frá samþykkt þeirra á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Byggingarleyfi gildir í 12 mánuði frá útgáfu. Umsækjandi getur óskað eftir endurgreiðslu eftirlits- og yfirferðargjalds ef hætt hefur verið við framkvæmdir en afgreiðslugjald er óafturkræft þó hætt hafi verið við framkvæmdir.
Gjaldskrá þessi er sett með tilvísun í heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Innheimta skal byggingarleyfisgjöld áður en byggingarleyfi er gefið út sbr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld samkvæmt gjaldskránni miðast við launavísitölu í desember 2021, 806,0 stig, og breytast þau 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni, námundaðar í næsta heila hundrað, og gilda til loka viðkomandi almanaksárs.
Gjaldskrá embættisins sama efnis nr. 987/2021 fellur úr gildi við gildistöku þessarar.
Laugarvatni, 17. febrúar 2022
Davíð Sigurðsson, byggingarfulltrúi
Jóhannes Hr. Símonarson, framkvæmdastjóri
Gjaldskrá þessi tók gildi 7. mars 2022 við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda
Gjaldskráin hefur verið uppfærð miðað við 1. janúar 2024 – og tekur mið af launavísitölu nóvembermánaðar 2023 – 964,5 stig
Til áréttingar:
Gjöld embættisins skv. þessari gjaldskrá bera ekki virðisaukaskatt með tilvísun í 4. tölulið 3. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988 sem segir efnislega að ríki, bæjar- og sveitarfélög eða fyrirtæki og stofnanir á þeirra vegum skuli aðeins innheimta virðisaukaskatt af vörum og skattskyldri þjónustu sem teljast vera í samkeppnisrekstri en ekki að öðru leyti.