1. gr.
Gildissvið
Gjaldskráin gildir fyrir sveitarfélögin Ásahrepp, Bláskógabyggð, Flóahrepp, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
2. gr.
Meginreglur
Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.
Skipulagsnefnd og/eða sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags getur þó ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.
Gjaldskráin sýnir viðmiðunargjald miðað við hefðbundin tíma og kostnað einstakra mála. Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald, vegna umfangs verksins, áskilur Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. sér rétt til að leggja á til viðbótar tímagjald skipulagsfulltrúa sem er 17.343 kr./klst., eða gjald skv. reikningi vegna aðkeyptrar vinnu embættisins.
Ef nýtt deiliskipulag eða verulegar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi kalla á breytingar á gildandi aðalskipulagi og/eða öðrum deiliskipulagsuppdráttum áskilur Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. sér jafnframt rétt til að innheimta tímagjald skipulagsfulltrúa, 17.343 kr./klst., eða gjald skv. reikningi vegna aðkeyptrar vinnu embættisins.
3. gr.
Skilgreiningar
Afgreiðslugjald: Gjald sem greitt er við móttöku umsóknar um skipulagsbreytingar, lóðamál eða framkvæmdaleyfi. Afgreiðslugjaldinu er ætlað að standa straum af kostnaði Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. við móttöku og yfirferð erindis sem lagt er fram til afgreiðslu á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa eða fundi skipulagsnefndar. Greiðsla afgreiðslugjalds er óafturkræft þótt erindi sé synjað eða það dregið til baka ef vinna skipulagsfulltrúa/skipulagsnefndar hefur átt sér stað og málið tekið fyrir á fundi.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður: Kostnaður Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. við undirbúning og umsýslu erindis til kynningar og/eða auglýsingar.
4. gr.
Innheimta gjalda
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. skal innheimta gjöld samkvæmt þessari gjaldskrá fyrir hönd aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins.
Innheimta skal afgreiðslugjald þegar umsókn er lögð fram vegna erindis um breytingu á aðalskipulagi, erindis um nýtt deiliskipulag, verulegar eða óverulegar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi, erindis um lóðamál og erindi um framkvæmdaleyfi. Gjaldskráin tekur mið af því að afgreiðslugjald sé hluti af heildarkostnaði málsmeðferðar. Sé þörf á að vinna nýja skipulagsáætlun eða breytingar á fyrirliggjandi skipulagsáætlun vegna leyfisskyldra framkvæmda innheimtir skipulagsfulltrúi tímagjald skv. 2. gr. þessarar gjaldskrár fyrir þá skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar framkvæmdar.
5. gr.
Gjalddagi
Afgreiðslugjald samkvæmt þessari gjaldskrá skal innheimta við móttöku erindis og skal vera greitt áður en fjallað er um erindi. Umsýslu- og auglýsingagjöld vegna breytinga á aðal- eða deiliskipulagi skal greiða áður en tillaga er auglýst í kjölfar samþykktar þess efnis. Gjald vegna lóðamála, umfram afgreiðslugjald, skal greiða samhliða skráningu til Þjóðskrár. Gjald vegna framkvæmdaleyfis skal greiða samhliða útgáfu leyfisins. Gjald vegna grenndarkynningar skv. 8. gr. þessarar gjaldskrár skal innheimt samhliða byggingarleyfisgjöldum byggingarfulltrúa UTU eftir atvikum.
6. gr.
Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga
Afgreiðslugjald: | 28.802 kr | |
Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu: |
skv. reikn. | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga 123/2010: | 293.175 kr | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga 123/2010: | 86.189 kr |
7. gr.
Kostnaður vegna deiliskipulags
Afgreiðslugjald: | 28.802 kr | |
Nýtt deiliskipulag: | ||
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38 gr. skipulagslaga 123/2010, vinnsla breytingartillögu: |
skv. reikn. | |
Nýtt deiliskipulag án lýsingar og kynningar, skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga 123/2010, vinnsla breytingartillögu: | skv. reikn. | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38 gr. skipulagslaga 123/2010: | 293.175 kr | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010: | 164.384 kr | |
Verulegar breytingar á deiliskipulagi: | ||
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga 123/2010, vinnsla breytingartillögu: |
skv. reikn. | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010: | 164.384 kr | |
Óverulegar breytingar á deiliskipulagi: | ||
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010, vinnsla breytingartillögu: |
skv. reikn. | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010 með grenndarkynningu: |
76.652 kr | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010 án grenndarkynningar: |
19.493 kr |
8. gr.
Kostnaður vegna grenndarkynningar
Grenndarkynning, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010, deiliskipulag ekki fyrir hendi: |
57.159 kr |
9. gr.
Kostnaður vegna lóðamála
Afgreiðslugjald: | 28.802 kr | |
Stofnun lóða í Landskrá fasteigna skv. 48. gr. skipulagslaga 123/2010, með grenndarkynningu, grunngjald: |
77.369 kr | |
Stofnun lóða í Landskrá fasteigna skv. 48. gr. skipulagslaga 123/2010, án grenndarkynningar, grunngjald: |
20.210 kr | |
Stofnun lóða í Landskrá fasteigna á grundvelli deiliskipulags, grunngjald*: | Afgr.gjald | |
>> Landnúmer umfram eitt (per lóð): | 10.075 kr | |
Breyting á skráningu í Landskrá fasteigna**: | Afgr.gjald |
10. gr.
Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis
Afgreiðslugjald: | 28.802 kr. – | |
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, viðmiðunargjald: | 120.688 kr. – | |
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald: | 53.417 kr. – | |
Eftirlit umfram eina ferð sem innifalin er í framkvæmdaleyfisgjaldi*: | skv. tímagj. – |
11. gr.
Gjaldtökuheimild og breytingar á fjárhæð gjalda
Leyfisgjöldum fylgja lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð þar sem við getur átt og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi án undangengins dóms eða réttarsáttar.
Leyfisgjöld eru óafturkræf þó leyfi falli úr gildi.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld samkvæmt þessari gjaldskrá miðast við launavísitölu í janúar 2021, 778,6 stig og breytast þau þann 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni og gilda þau til loka viðkomandi almanaksárs.
Eldri gjaldskrá embættisins nr. 733/2016 fellur úr gildi við gildistöku nýrrar.
Laugarvatni, 18. ágúst 2021
Vigfús Þór Hróbjartsson, skipulagsfulltrúi UTU bs.
Gjaldskrá þessi öðlast gildi eftir 1. september 2021 við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda
Athugið að þessi gjaldskrá hefur verið uppfærð miðað við 1. janúar 2024 – og tekur mið af launavísitölu nóvembermánaðar 2023 – 964,5 stig.
Til áréttingar:
Gjöld embættisins skv. þessari gjaldskrá bera ekki virðisaukaskatt með tilvísun í 4. tölulið 3. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988 sem segir efnislega að ríki, bæjar- og sveitarfélög eða fyrirtæki og stofnanir á þeirra vegum skuli aðeins innheimta virðisaukaskatt af vörum og skattskyldri þjónustu sem teljast vera í samkeppnisrekstri en ekki að öðru leyti.