22 apr Ritari óskast
Laust er til umsóknar starf ritara hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.
Um framtíðarstarf er að ræða í 100% starfshlutfalli.
Skrifstofa embættisins er að Dalbraut 12 á Laugarvatni.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Móttaka gagna og skjalaumsjón
- Ráðgjöf og upplýsingagjöf við umsækjendur í síma og tölvupósti
- Samskipti og bréfaskrif við opinberar stofnanir
- Reikningagerð
- Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Rík þjónustulund
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta í öllum helstu forritum s.s. Outlook, Word og Excel
- Þekking á skipulagsmálum sveitarfélaga er mikill kostur
- Þekking á ONESystem umsjónarkerfinu er kostur
Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhannes Hr. Símonarson, skrifstofustjóri í síma 480-5550 eða á netfanginu johannes@utu.is Umsókn ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal jafnframt senda á þetta sama netfang.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. (UTU) er sameiginleg skrifstofa skipulags- og byggingarfulltrúa Ásahrepps, Bláskógabyggðar, Flóahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Hjá embættinu starfa tíu manns. Skrifstofa embættisins er á Laugarvatni. Mörg sumarhús eru á starfssvæði embættisins og einkennir það starfsemi UTU umfram flest önnur skipulags- og byggingarembætti á landinu.