01 apr Afgreiðslur byggingarfulltrúa fundur nr. 118 – 1. apríl 2020
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 20 – 118. fundur haldinn að Laugarvatni, 1. apríl 2020 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu:
Davíð Sigurðsson byggingarfulltrúi, Stefán Short aðstoðarmaður byggingarfulltrúa, Lilja Ómarsdóttir aðstoðarmaður byggingarfulltrúa, Guðmundur G. Þórisson áheyrnarfulltrúi og Halldór Ásgeirsson áheyrnarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Davíð Sigurðsson, byggingarfulltrúi
Fundurinn var haldinn í fjarfundarbúnaði.
Dagskrá:
Ásahreppur – Almenn mál | ||
1. | Krókur (l165302); stöðuleyfi; sumarbústaður – 2003036 | |
Fyrir liggur umsókn Reynis Arnar Pálmasonar, móttekin 20.03.2020 um stöðuleyfi fyrir sumarhús 91,7 m2 í byggingu á jörðinni Krókur (L165302) í Ásahreppi. | ||
Samþykkt að veita stöðuleyfi fyrir sumarhúsi í byggingu til 1.4.2021 | ||
2. | Þóristungur (L229271); tilkynningarskyld framkvæmd; skáli – breyting – 2003022 | |
Fyrir liggur umsókn Andra Þórs Jónssonar fyrir hönd Fish Partner ehf. móttekin 13.03.2020 um tilkynningarskylda framkvæmd. Til stendur að breyta innra skipulagi í skála á viðskipta – og þjónustulóðinni Þóristungur (L229271) í Ásahreppi. | ||
Frestað, athugasemdir hafa verið sendar á hönnuð. | ||
Hrunamannahreppur – Almenn mál | ||
3. | Kríubraut 4 (L217085); umsókn um byggingarleyfi; sumarhús – breyting – 1805001 | |
Erindið er sett að nýju fyrir fund, móttekinn er tölvupóstur þann 25.03.2020 frá hönnuði með breyttri aðalteikningu. Sótt er um leyfi til að breyta þakgerðinni á baðhúsi, breytt mænisþak, á sumarhúsalóðinni Kríubraut 4 (L217085) í Hrunamannahreppi. | ||
Samþykkt. | ||
4. | Syðra-Sel (L166822); umsókn um byggingarleyfi; íbúðarhús með bílgeymslu – 2003033 | |
Fyrir liggur umsókn Sigurðar Unnars Sigurðssonar fyrir hönd Guðmundar Böðvarssonar, móttekin 24.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja íbúðarhús með sambyggðri bílgeymslu 269,2 m2 á jöðrinni Syðra-Sel (L166822) í Hrunamannahreppi. | ||
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. | ||
5. | Akurgerði 8 (L166744); umsókn um byggingarleyfi; bílskúr-breyting – 1503019 | |
Erindið sett að nýju fyrir fund, móttekinn var tölvupóstur þann 27.03.2020 frá Helgu Björgu Bragadóttur fyrir hönd Gott bú ehf., sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi sem var samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 27.03.2015 á íbúðarhúsalóðinni Akurgerði 8 (L166744) í Hrunamannahreppi. | ||
Samþykkt | ||
6. | Túnsberg (L166835); tilkynningarskyld framkvæmd; fjós með áburðarkjalla mhl 05 – breyting – 2003041 | |
Fyrir liggur umsókn Helga Kjartanssonar fyrir hönd Gunnars Kristins Eiríkssonar, móttekin 30.03.2020 um byggingarleyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á fjósi með áburðarkjallara mhl 05, byggingarár 2007, 935,9 m2 á jörðinni Túnsberg (L166835) í Hrunamannahreppi. | ||
Samþykkt. | ||
Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál | ||
7. | Kerhraun B 113 (L208900); umsókn um byggingarleyfi; sumarbústaður – 2003018 | |
Fyrir liggur umsókn Ingvars Bjarnasonar fyrir hönd Lárusar Gestssonar og Elísabetar Pálsdóttur, móttekin 13.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja sumarbústað 44,4 m2 á sumarbústaðalandinu Kerhraun B 113 (L208900) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
8. | Kerhraun B 130 (L208899); umsókn um byggingarleyfi; sumarbústaður – 2003026 | |
Fyrir liggur umsókn Bjarka Más Sveinssonar fyrir hönd Halldórs Þorvaldssonar og Regínu Scheving Valgeirsdóttur, móttekin 23.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja sumarbústað með lagnakjallara 40 m2 á sumarbústaðalandinu Kerhraun B 130 í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
9. | Lækjarbrekka 1 (L208530); umsókn um byggingarleyfi; sumarbústaður – 2003031 | |
Fyrir liggur umsókn Kjartans Sigurbjartssonar fyrir hönd Súperbygg ehf., móttekin 02.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja sumarbústað 101,9 m2 á sumarbústaðalandinu Lækjarbrekka 1 (L208530) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
10. | Lækjarbrekka 8 (L229435); umsókn um byggingarleyfi; sumarbústaður – 2003032 | |
Fyrir liggur umsókn Kjartans Sigurbjartssonar fyrir hönd Súperbygg ehf., móttekin 02.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja sumarbústað 101,9 m2 á sumarbústaðalandinu Lækjarbrekka 8 (L229435) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
11. | Rimamói 7 (L169866); umsókn um byggingarleyfi; sumarbústaður – 2001009 | |
Fyrir liggur umsókn Samúels Smára Hreggviðssonar fyrir hönd Kolbrúnar Jónsdóttur móttekin 03.01.2020 um byggingarleyfi til að byggja sumarbústað með svefnlofti 85,4 m2 í stað sumarhúss sem var fyrir á sumarbústaðalandinu Rimamói 7 (L169866) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
12. | Goðhólsbraut 19 (L169970); umsókn um byggingarleyfi; geymsluskúr – 2003027 | |
Fyrir liggur umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar fyrir hönd Gylfa Héðinssonar, móttekin 20.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja geymsluskúr 40 m2 á sumarbústaðalandinu Goðhólsbraut 19 (L169970) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál | ||
13. | Við Kálfá lóð 4 (L195542); umsókn um byggingarleyfi; sumarbústaður – 2003024 | |
Fyrir liggur umsókn Sigurðar Unnars Sigurðssonar fyrir hönd Barrholt ehf. móttekin 16.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja sumarbústað 62 m2 á sumarbústaðalandinu Við Kálfá lóð 4 (L195542) í Skeiða- og Gnúpverjahrepp. | ||
Við afgreiðslu máls vék Davíð Sigurðsson af fundi og setur Lilju Ómarsdóttur og Stefán Short sem staðgengla sína við afgreiðslu máls. Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
Bláskógabyggð – Almenn mál | ||
14. | V-Gata 36 (L170755); fyrirspurn um byggingaráform; sumarbústaður – viðbygging – 2002015 | |
Fyrir liggur umsókn Ívars Haukssonar fyrir hönd Gunnarsfell eignir ehf. móttekin 03.02.2020 sem fyrirspurn um hvort megi byggja við núverandi sumarbústað 35 m2 á sumarbústaðalandinu V-Gata 36 (L170755) í Bláskógabyggð. Heildarstærð á sumarhúsi eftir stækkun verður 85 m2. | ||
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. | ||
15. | Gufuhlíð (L167096); umsókn um byggingarleyfi; gróðurhús mhl 23 ásamt tengibyggingu – 2003023 | |
Fyrir liggur umsókn Ólafs Tage Bjarnasonar fyrir hönd Gufuhlíð ehf., móttekin 13.03.2020 um byggingarleyfi til að byggja gróðurhús mhl 23 ásamt tengibyggingu 2.293 m2 á jörðinni Gufuhlíð (L167096) í Bláskógabyggð. | ||
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. | ||
16. | Leynir lóð (L167906); umsókn um byggingarleyfi; geymsla – 2003039 | |
Fyrir liggur umsókn Haraldar Ásgeirssonar, móttekin 27.03.2020 um byggingarleyfi til að fjarlægja geymslu sem fyrir er 19,4 m2, byggingaár 1989 og byggja nýja 40 m2 á sumarbústaðalandinu Leynir lóð (L167906) í Bláskógabyggð. | ||
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. | ||
Flóahreppur – Almenn mál | ||
17. | Lækur (L166266); tilkynningarskyld framkvæmd; lausagöngu-hjarðfjós mhl 04 – endurbætur – 2003030 | |
Fyrir liggur umsókn Ágústs Guðjónssonar og Margrétar Drífu Guðmundsdóttur, móttekin 24.03.2020 um tilkynningarskylda framkvæmd. Til stendur að fara í endurbætur á lausagöngu/hjarðfjósi mhl 04 á jörðinni Lækur (L166266) í Flóahreppi. | ||
Samþykkt. | ||
18. | Súluholt (L216736); umsókn um byggingarleyfi; frístundahús mhl 06 – breyting – 1709005 | |
Erindi sett að nýju fyrir fund, móttekin var ný umsókn og aðalteikning frá Victori B. Victorssyni og Sigrúnu H. Arnarsdóttur, þar sem sótt er um breytingu á fyrri samþykkt dags. 20.09.2017. Nú er sótt um leyfi til að byggja frístundahús mhl 06, 33 m2 á jörðinni Súluholt (L216736) í Flóahreppi. | ||
Afgreiðslu máls er frestað þar sem lóð skv. deiliskipulagi hefur ekki verið stofnuð. | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00