18 des Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 13. desember 2017
Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 17 – 69. fundur
haldinn Laugarvatni, 13. desember 2017
og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Davíð Sigurðsson, Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa, Rúnar Guðmundsson, Byggingarfulltrúi og Guðmundur Þórisson, Áheyrnarfulltrúi, Þórarinn Magnússon, Áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson, byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. |
Ásahreppur:
Sjónarhóll: Tilkynningarskyld framkvæmd: Íbúðarhús – viðbygging – 1711023 |
|
Tilkynnt er stækkun á íbúðarhúsi um 39,9 fm2. Heildarstærð eftir stækkun er 181,3 fm2 og 622,1 m3. | ||
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum. |
||
2. | Grímsnes- og Grafningshreppur:
Þrastalundur lóð 1: Umsókn um byggingarleyfi: Veitingahús – stækkun – 1711065 |
|
Sótt er um leyfi til að byggja við veitingahús 10,5 fm2 og 30 m3 úr timbri. Heildarstærð eftir stækkun er 460,4 fm2 | ||
Samþykkt. | ||
3. | Reykjanes lóð 9: Umsókn um byggingarleyfi: Geymsla – 1711057 | |
Sótt er um leyfi fyrir geymslu 39,8 fm2 og 129,4 m3. | ||
Samþykkt. | ||
4. |
Skeiða- og Gnúpverjahreppur:
Vesturkot: Umsókn um byggingarleyfi: Hlaða – viðbygging – 1704052 |
|
Sótt er um leyfi til að byggja við hlöðu, heildarstærð eftir stækkun er 132,5 fm2 og 817,6 m3 | ||
Samþykkt. |
5. |
Bláskógabyggð:
Einiholt 1 land 2: Umsókn um byggingarleyfi: Íbúðarhús – 1712012 |
|
Sótt er um leyfi til að byggja íbúðarhús með risi að hluta úr timbri, 92,6 fm2 og 357,1 m3 | ||
Vísað til skipulagsnefndar til yfirferðar. | ||
6. |
Álfhólsvegur 2: Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – stækkun – 1711024 |
|
Tilkynnt er stækkun 39,2 fm2 úr timbri á sumarhúsinu að Álfhólsvegi 2. Heildarstærð verður 86,9 fm2 | ||
Samþykkt. | ||
7. |
Kjóastaðir 1 land 2: Umsókn um byggingarleyfi: Veitingahús – viðbygging – 1703079 |
|
Sett að nýju fyrir fund og nú er sótt um stækkun til viðbótar 15,2 fm2 á veitingarhúsi og 39,2 m3. Heildarstærð eftir stækkun er 482,3 fm2 | ||
Samþykkt. | ||
8. |
Flóhreppur:
Laugardælur jarðhiti: Umsókn um byggingarleyfi: Dæluhús – 1712017 |
|
Sótt er um leyfi til að flytja eldra dæluhús af borholu nr. 17 á nýjar undirstöður yfir borholu nr. 18 sem er 17,7 fm2 og 55,6 m3. | ||
Samþykkt. | ||
9. |
Umsögn um rekstrarleyfi:
Kjóastaðir 1 land 2: Umsögn um rekstrarleyfi – 1711067 |
|
Borist hefur tölvupóstur dagsettur 29/12 2017 frá fulltrúa Sýslumanns Suðurlands þar sem óskað er eftir umsögn um rektstarleyfi í fl. III, umfangsmikill áfengisveitingastaðir í A,B,C,D,E,F og G í tegund veitingastaða. | ||
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að veitt verið leyfi í rekstrarflokki III flokkar A-G. Gestafjöldi allt að 348 manns. |
10. | Goðatún: Umsögn um rekstrarleyfi – 1710003 | |
Borist hefur tölvupóstur dagsettur 3/10 2017 frá fulltrúa Sýslumanns Suðurlands þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, tegund gististaða – íbúðir (F), mhl 03 gestahús á Goðatúni skv. Þjóðskrá Íslands | ||
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að veitt sé rekstrarleyfi í fl II, gististaður án veitinga. Gisting fyrir allt að 4 manns. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30
___________________________ ___________________________