Húsnæðis- og mannvirkjastofnun – Skoðunarlistar og stoðrit
Húsnæðis – og mannvirkjastofnun – leiðbeiningar við byggingarreglugerð 112/2012
UTU – Gátlisti hönnuða vegna aðaluppdrátta
Gátlisti 2022 (PDF) – Gátlisti 2022 (excel)
Nota má meðfylgjandi eyðublað (eða hafa það til hliðsjónar) ef gefa þarf öðrum aðila umboð til að sækja um byggingarleyfi fyrir sína hönd. Fyllið út rauð svæði eyðublaðsins og gætið þess að umboðið sé dagsett og vottað. Vottar þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Ef umboðið er vottað af lögmanni eða löggiltum fasteignasala nægir undirskrift hans eins enda fylgi embættisstimpill vottuninni sbr. þinglýsingalög 39/1978.
Eyðublöð skipulagsfulltrúa:
Í Þjónustugátt UTU má sækja um öll neðangreind atriði með einföldum og fljótlegum hætti. Inn í þjónustugáttina þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Ef umsækjandi er ekki með rafræn skilríki eða Íslykil er hægt að sækja viðeigandi eyðublöð með því að smella á þau hér að neðan, fylla þau út og senda inn með tölvupósti á netfangið utu@utu.is eða senda þau með öðrum hætti á skrifstofu embættisins að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni.
EBL 100 – Umsókn um skipulagsmál
EBL 101 – Umsókn um stofnun lóðar
EBL 102 – Umsókn um breytingu á skráningu lóðar
EBL 103 – Umsókn um framkvæmdaleyfi
EBL 104 – Fyrirspurn til skipulagsnefndar
Eyðublöð byggingarfulltrúa:
Í Þjónustugátt UTU skal sækja um byggingarleyfi/byggingarheimild og tilkynningarskyldar framvæmdir. Þar skal einnig sækja um stöðuleyfi, niðurrif og staðfestingu á eignaskiptayfirlýsingu. Þar eiga líka byggingastjórar og iðnmeistarar að gefa sínar uppáskriftir í einstökum verkum. Inn í þjónustugáttina þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða með Íslykli.
EBL 212 – Tilkynning um byggingastjóraskipti
EBL 213 – Tilkynning um iðnmeistaraskipti